Thursday 09th of September 2010
|
|
|
Skrifað af Ágústa Ringsted
|
|
Föstudagur, 03. Október 2008 20:59 |
|
Matthías Máni er orðinn stór og duglegur strákur, það finnst foreldrunum a.m.k. Hann er farinn að velta sér eins og ekkert sé.. . reyndar bara af bakinu á magann, frá hægriJ Svo þegar hann er búinn að liggja í smá stund á maganum gefur hann frá sér mikil óánægjuhljóð og heimtar að láta snúa sér á bakið aftur... og snýr sér um leið og maður gengur í burtu. Hann er líka farinn að sitja nokkuð stöðugt og þykir rosalega skemmtilegt að skoða heiminn úr þeirri stöðu. Ekki þykir honum leiðinlegra að vera í göngugrindinni og er farinn að skoða bókmenntir heimilisins, heillaðist sérstaklega af Sóldögum Guðmundar Inga Matthías Máni fór í 6 mánaða skoðun í gær, mældist 68 sm og 8945 gr. Hann byrjaði líka að fá graut að borða fyrir tæpum 2 vikum síðan og líkar bara vel, spenningurinn er þvílíkur að hann titrar og gefur frá sér allskonar skræki, setti inn myndband sem ég tók eftir máltíðina í gærkvöldi. Ein tönn er að reyna að gægjast upp með tilheyrandi pirringi hjá grey kallinum. Hann er samt alltaf jafn kátur og brosir bara út í eitt. Setti inn nokkrar nýjar myndir.
|
|
Síðast uppfært Föstudagur, 03. Október 2008 22:29 |
|
Var að setja inn myndband! |
|
|
|
|
Skrifað af Ágústa Ringsted
|
|
Föstudagur, 19. September 2008 09:29 |
splunkunýjum myndum
|
|
Loksins er að komast mynd á þetta! |
|
|
|
|
Skrifað af Ágústa Ringsted
|
|
Þriðjudagur, 16. September 2008 18:08 |
Ég var að setja inn sömu myndirnar og ég setti inn á sunnudagskvöldið, sennilega hafa ekki margir náð að skoða þær áður en hryðjuverkamaðurinn skemmdi allt. Þetta var nú ljóta, hvað fær fólk til að gera svona, ég bara skil þetta ekki. Sveiattan Gummi er búinn að vera sveittur við að reyna að ná myndunum til baka og setja síðuna upp aftur, það tókst nú ekki að ná í myndirnar en kannski kemur bloggið aftur inn. Takk Gummi fyrir hjálpina, þið fáið matarboð á næstunni Það á kannski eftir að taka smá tíma að koma öllum myndunum inn aftur en þetta kemur á endanum. Annars er Matthías Máni alltaf jafn hress og kátur. Hann er næstum því farinn að sitja en getur samt ekki velt sér... er í stöðugum æfingabúðum hjá pabba sínum. Hann er bara alveg að verða 6 mánaða, þetta líður ótrúlega fljótt. Þar til næst, hafið það gott.
|
|
Síðast uppfært Miðvikudagur, 17. September 2008 11:43 |
|
|
|
|
|
|
Síða 2 af 3 |
Heimsóknir
 | Í dag | 14 |
 | Alls | 16055 |
Stjórnað af Joomla!.
Designed by: Free Joomla Theme, YourSite review. Valid XHTML and CSS.