Lög Bikkjanna – Bifhjólaklúbbs lögreglumanna á Íslandi
1.gr.
Félagið heitir Bikkjur – Bifhjólaklúbbur lögreglumanna á Íslandi.
2. gr.
Heimili félagsins og varnarþing er í Reykjavík
3. gr
Tilgangur félagsins er að auka samheldni lögreglumanna. Skapa vettvang til félagsstarfs utan vinnutíma.
4. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með að því að skapa vettvang, skipuleggja og halda reglulegar bifhjólaferðir fyrir félagsmenn sína.
5. gr.
Stofnfélagar...
6.gr.
Til að vera samþykktur félagsmaður, þarf viðkomandi að vera lögregluskólagenginn, ekki er skilyrði að vera starfandi. Þá skulu félagsmenn hafa A-ökuréttindi.
7. gr.
Stjórn félagsins skal skipuð 5 félagsmönnum þ.e. formanni og 4 meðstjórnendum. Stjórnarmenn skulu kosnir til 2 ára í senn en formaður skal kosinn á hverjum aðalfundi. Formaður boðar stjórnarmenn á stjórnarfundi þegar þurfa þykir.
Daglega umsjón félagsins annast formaður.
Firmaritun félagsins er í höndum stjórnar.
8. gr.
Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi félagsins skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur í aðalfundi.
9. gr.
Árgjald félagsins er 2000 krónur og skal það innheimt með greiðslu inn á reikning félagsins.
10. gr.
Rekstrarafgangi/hagnaði af starfsemi félagsins skal varið til að standa skil á gjöldum og kostnaði sem tilfellur vegna félagsstarfa og annarra kostnaðarliða
11. gr.
Ákvörðun um slit félags verður tekin á aðalfundi með einföldum meirihluta og renna eignir þess til Lögreglukórs Reykjavíkur.
12. gr.
Starfsaldur innan félagsins gildir fram yfir starfsaldur innan lögreglunnar.
- Þó skulu eldri meðlimir félagsins njóta meiri virðingar en þeir sem yngri eru.
13. gr.
Stjórn félagsins sér um að samþykkja umsóknir nýrra félaga, er það gert einu sinni í mánuði.
14. gr.
Þá má gera undanþágu á inntökuskilyrðum í sérstökum tilfellum.
15. gr
Stjórn félagsins sker úr um ágreiningsmál sem upp kunna að koma.
16. gr.
Í ferðum á vegum félagsins skulu meðlimir fara eftir umferðarlögum eins og kostur er. Ferðirnar eru öllum opnar svo menn verða að muna fyrir hvað félagið stendur.
17. gr.
Láti stjórnarmaður af embætti skal það auglýst á heimasíðu félagsins. Í kjölfarið er óskað eftir framboði/tilnefningu og er kosið um þá sem bjóða sig fram.
Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi félagsins og öðlsast gildi 20. febrúar 2008