Velkomin(n) á vefsíðu Djönk-sins
Djönk-ið er þjónusta sem býður einstaklingum og/eða hópum, möguleikann á upptökum við ýmis tækifæri. Þá er átt við upptökur á ýmis konar viðburðum. Sem dæmi má nefna brúðkaup, skírn, afmæli eða aðrar samkomur og veislur. Hugsunin er að viðkomandi þurfi ekki að eyða tíma eða áhyggjum í að skipuleggja eða halda utan um þennan þátt viðburðarins, heldur láta hann í hendur aðila, sem þarf ekki að hugsa um neitt annað en að taka upp. Þannig má fá faglega og fallega mynd af því sem átti sér stað. Með þjónustu Djönk-sins er það óþarfi að leggja á fjölskyldu, vini eða aðra vandamenn að sjá um upptökurnar. Upptökum er skilað á DVD diskum. Þá er það möguleiki að efnið sé klippt sérstaklega og sett inn tónlist, textar, ljósmyndir og hvað eina. Í raun má segja að þetta er ykkar viðburður, ykkar val.
Djönk-ið er í samstarfi við mjög góða áhuga-ljósmyndara sem taka einstaklega skemmtilegar og fallegar myndir. Myndir þeirra má sjá hér á vefsíðunni undir liðnum “Gallerí”. Þannig að Djönk-ið bíður þér að kaupa heildarumsjón með ljós- og hreyfimyndum í þínum viðburðum. Ekki hika við að hafa samband og fræðast frekar um þennan þátt, en einnig er að finna frekari upplýsingar undir liðnum "ljósmyndun" hér til hliðar.
Nýtt hjá Djönk-inu er svo yfirfærsla gamalla myndbandsspóla á DVD diska. Þá er einnig hægt að fá efnið útgefið á tölvutæku formi, sbr. .avi, .mov, .mpg eða fleiri tegundir.
Endilega skoðið síðuna og vitið hvort þetta sé ekki eitthvað sem tilvalið er að nýta sér. Hvers vegna að eyða tíma og áhyggjum í að angra einhvern fjölskyldumeðlim, vin eða annan til að taka upp fyrir þig ef þú getur fengið áreiðanlega og faglega þjónustu í þeim efnum. Ekki hika við að hafa samband með fyrirspurnir, hugmyndir eða hvaða vangaveltur sem er. Það er enginn tæmandi listi til yfir þau verkefni sem hægt er að taka fyrir.
Netfangið er
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


